Hvað kostar „ódýr" vefhýsing í raun og veru?

Í vefhýsingarheiminum er algengt trix sem kallast "Introductory Pricing". Þú færð frábært verð fyrsta árið, en til að fá það þarftu oft að greiða 12 til 36 mánuði fyrirfram. Þegar því tímabili lýkur, hækkar verðið oft um 100% eða meira. Allt í einu er "ódýra" hýsingin orðin sú dýrasta, og þú ert fastur í viðskiptum.
Við hjá Stakk ákváðum að fara aðra leið. Okkur finnst að vefhýsing eigi að vera einföld og gagnsæ.
Engin binding
Þú átt ekki að þurfa að giftast hýsingunni þinni.
Mánaðarlegar greiðslur
Af hverju að lána fyrirtæki pening í heilt ár? Greiddu bara fyrir það sem þú notar.
Sama verð
Verðið okkar hækkar ekki skyndilega eftir 12 mánuði.
Næst þegar þú berð saman verð, skoðaðu smáa letrið. Er verið að biðja þig um að greiða árið fyrirfram? Hvað kostar endurnýjun? Reiknaðu dæmið til enda.
Deila greininni
Deildu þessari grein með vinum og félögum